sunnudagur, 12. október 2008

Flutningar

Ég hef ákveðið að flytja mig um bloggkerfi. Er ekki alveg að fíla þetta blogspot kerfi, finnst bara flókið og leiðinlegt að gera breytingar á útliti síðunnar og uppsetningu og fæ oft upp error-a. Þannig að ég ætla að tékka á wordpress blogginu, er búin að vera að fikta þar og lýst bara alveg ljómandi vel á það, sérstaklega þar sem boðið er upp á íslenska útgáfu.

Slóðin er ingibjörgh.wordpress.com

og fyrir Rss fíklana, þá er auðvitað bara bætt feed við fyrir aftan, ingibjorgh.wordpress.com/feed/

Ég flutti allt héðan yfir á nýju síðuna og hlakka til að fá að heyra hvað fólki finnst.

Kveðja,
Ingibjörg sem er búin að pakka niður hérna og lögð af stað á wordpress......

miðvikudagur, 8. október 2008

Mikið að gerast

Viðburðaríkir dagar að baki, allt á hvolfi í fjármálaheiminum og mátti litlu muna að virkilega illa hefði farið. Ótrúlegt hvað svona gerist hratt, allir vissu nú svosem að við værum á niðurleið en ég held að fæstum hafi grunað við værum á svona hraðri niðurleið og hvað þá svona langt. Þetta er hreinlega ævintýri líkast. Þetta er eins og ódýr vísindaskáldsögumynd gerð árið 1993 um það hvernig heimurinn komi til með að fara árið 2000 og e-ð.

Fyrst fellur kerfið og fólk panikar og fer að hegða sér eins og fífl, hlaupa út um allt í geðshræringu til að veita sér björg, það hamstrar mat og olíu þangað til að lítið er eftir, þá fer fólk að berjast fyrir lífu sínu og það sem gildir eru klærnar. Survival of the fittest, gamla góða náttúrulögmálið er efst á baugi og fólk svífst einskins til að ná í seinustu kexpakkana(ég meina hver getur verið kexlaus). Allir tæma útúr bönkunum því þeim er ekki treystandi sem gerir það að verkum að bankakerfið fellur endanlega. Fljótlega eru peningar þó orðnir verðlausir blaðsnefslar og betur nýttir sem eldiviður en til skipta fyrir vörur. Og eins og ástandið sé ekki orðið nógu slæmt, bætist við að skæð bakteríuveira fer að ganga og þúsundir ef ekki miljónir manna deyja og margir aðrir verða örkumla. Vegna mannfallsins geta fáir sinnt þeim samfélagslegu þörfum sem áður þarf að sinna, svosem að mála hús, laga vegi, slá grasbletti og annað slíkt. Allt verður drungalegt og dimmt, sem fer í skapið á fólki og það hættir að treysta hvert öðru. Og þá er nú ekkert eftir til að gera söguna lélegri en að flytja bara til Mars og ferðast um á flugbílum.

Við stefnum að þessu, sjáið bara til, byrjunin er komin...