Úfff tíminn líður hratt, ætlaði fyrir löngu að vera búin að skrifa eitthvað hérna inn en það hefur bara dottið upp fyrir. Allavega, þá eru strákarnir byrjaðir í skólanum og það er alveg svakalegt stuð sérstaklega hjá Guðna Jóel, það er bara allt gaman. Það er gaman í smíðum og hann fór á bókasafnið og það var gaman og hann er búinn að fara í sund og já auðvitað var það líka gaman, kennarinn hans er búinn að vera frá og hann er búinn að vera með gamla kennarann hans Andra og það er FRÁBÆRT!!!! Hann er líka búinn að fatta að hann er ekki sá eini í skólanum sem er fimm ára, hann er búinn að finna tvo aðila sem eru í þeirri erfiðu stöðu en hann bíður spenntur eftir að komast í sex ára flokkinn.
Andri er nú ekki alveg eins spenntur yfir þessu öllu en honum finnst samt voðalega gaman. Hann er farinn að hafa óþarflega mikla skoðun á hlutunum sem mér finnst reyndar bara gaman og fyndið. Húfan hans er t.d. orðin alveg ferlega hallærisleg allt í einu og allt sem Guðni gerir og hefur gaman af er alveg hræðilega barnalegt, þ.e. þegar vinir hans eru nálægt til að hlusta á það. Svo eru náttúrulega einhver ákveðin föt sem hægt er að fara í í skólann en önnur, ekki að ræða það. En eins og ég segi hef ég bara gaman af þessu, það er svaka þroskamerki að vilja fara að stjóra lífi sínu sjálfur og taka sjálfstæðar ákvarðanir þannig að maður getur nú varla kvartað.
En það er eitt sem aldrei breytist, báðir elska þeir litla bróðir sinn út af lífinu, Guðni getur ekki farið uppí rúm án þess að kyssa hann góða nótt og Andri dregur ennþá krakka með sér heim úr skólanum til að sýna þeim Hilmar Darra. Núna er Hilmar komin með tönn, hún kom upp á laugardaginn og það finnst Andra alveg rosalega spennandi. Þeir eru líka alltaf að fatta eitthvað nýtt sem Hilmar getur sem hann gat ekki áður en þeir fóru og Hilmar er líka alltaf að læra eitthvað nýtt.
Úffff, hann virðist ætla að vera dáldið hress hann Hilmar, hann prílar og klöngrast og fer hér hratt um. Það er ekki hægt að líta af honum eitt augnablik þá er hann komin einhvert sem hann á ekki að vera. Eldhússkáparnir mínir eru alveg rosalega vinsælir núna og ískápurinn og frystirinn, eftir að hafa lokað ísskápnum endalaust hérna einn daginn sá ég fram á að ég yrði bara að teypa hann, þannig að ískápurinn er innsiglaður núna þessa dagana. Maður getur heldur ekki litið af honum þegar hann er í matarstólnum sínum því hann reynir að standa uppúr honum, ég þarf að fá mér beisli á hann sem fyrst. Í göngugrindinni reynir hann stundum að velta sér uppúr, það er alveg glænýtt, þá hallar hann sér alveg fram og spriklar með fæturnar í lausu lofti, voðalega sniðugt og hann dettur næstum. Hann getur ekki verið á gólfinu í 1 mínútu eftirlitslaus því að þá er hann staðinn upp einhversstaðar og hann hikar ekkert við að sleppa sér alveg ef hann þarf að nota báðar hendur en hann hefur ekki jafnvægi til að standa einn, svo stundum þá labbar hann bara fram af brúninni sem hann hélst sér í, honum er alveg sama. Vinkona mín bauð mér leikgrind fyrir hann og ég ætla bara að þiggja það hjá henni svo ég komist allavega í þvottahúsið eða geti eldað án þess að maturinn brenni við þegar ég þarf að hlaupa og bjarga honum.
En já þetta er svona það helsta sem er að frétta af okkur, fyrir utan auðvitað að ég er komin í fjarnám í Iðnskólanum, ætla að taka 3 áfanga þar í Grunnnámi upplýsinga og fjölmiðlagreina. Ég er þá að læra myndvinnslu og þessháttar núna þessa önn. Ef þetta gengur vel og allt gengur upp sem þarf að ganga upp ætla ég bara að skella mér í fullan skóla eftir áramót og keyra á milli og stefna þá á grafíska miðlun. Er orðin svo leið á að rembast eins og rjúpa við staur að taka þetta í fjarnámi og aldrei sjá fyrir endann á nokkru að það er ekki eðlilegt, í fjarnámi myndi ég líklega klára í kringum fertugt og klára háskóla langt gengin í fimmtugt, hvað er gaman að því. Fyrir utan það að ég væri með rúman hundrað þúsund kall í laun allann þann tíma þar sem ég vinn á leikskóla.
Jæja, þetta er orðið svoldið langt, ég ætla að geyma ræðuna um skoðun mína á launum leikskólastarfsfólks þangað til seinna, þessi færsla færi að telja í blaðsíðum ef ég færi inná þá braut núna, haha.
Þangað til næst....
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli