miðvikudagur, 10. september 2008

Hversdagsleikinn ræður ríkjum

Hérna sunnan heiða gengur allt sinn vanagang svosem, Andri er búinn að vera veikur reyndar og þá fer Guðni einn á morgnanna sem er náttúrulega alveg óskaplega kúl. Hann hefur stækkað alveg ógurlega síðan hann byrjaði í skólanum og talar varla um annað en hvað er gaman. Svo eru náttúrulega öll afmælin að fara að skella á. Andri býður spenntur eftir sínu í næstu viku en fyrst á mamma afmæli. Það verður haldið upp á það uppí bústað næstu helgi og Andri Hrafn er orðinn dáldið hræddur um að hann nái ekki að koma þar sem hann er veikur núna en ég hefvenga trú á öðru en að hann komist. Svo er Guðni auðvitað farinn að telja niður og búa til óskalista hvað hann vill fá í afmælisgjöf. Ef einhver vill hugmynd um hvað hann vill þá er rafmagnsgítar ofarlega á listanum og líka gsm sími.

Sævar er byrjaður á fullu að vinna aftur eftir að hafa klárað fæðingarorlofið. Hann er líka mjög líklega kominn með samning hjá meistara hjá JÁverk, þeir tóku mjög vel í að taka hann á samning og vilja alls ekki missa hann frá sér, sem er léttir þegar það er verið að segja upp mönnum í hrönnum. Pólverjarnir týnast núna einn og einn heim, en þeim hefur ófáum verið sagt upp hjá JÁverk eins og annarsstaðar. Æi ég segi ekki annað en að það megi nú vera í lagi. Það voru hérna fyrir austan aðilar sem voru ekki alveg með alla fulla fimm í lagi. Einn þeirra sérstaklega var alveg virkilega ógeðslegur, við vissum ekki betur en að hann hafi farið heim aftur en þegar strákarnir komu heim frá Brasilíu, kom sá maður útúr tollinum líklega að koma úr vél frá Munich. Maður getur nú ekki annað en hugsað að þetta sé maður sem á líklega ekki afturkvæmt heim til Póllands því hann var hérna á Selfossi í dáldinn tíma atvinnulaus. Hann sat um stelpurnar á kössunum í Nóatúni og var gónandi á litlar stelpur og bara virkilega óhugnarlegur.
En þetta er það sem er búið að kalla yfir okkur. Meira að segja lögreglan viðurkennir að að fólk af erlendu bergi brotið sýnir þeim aukna óvirðingu og er mikið að brjóta af sér. Held að þeir hafi nú fengið sönnun á máli sínu núna seinustu helgi þegar lögregluþjónn var laminn í heimahúsi þar sem hann var kallaður að vegna hávaða, félagi hans gat ekkert gert þar sem aðrir í partýinu stoppuðu hann að komast að. Þessu liði er alveg sama, þeir vita alveg að lögreglan hérna er ekki vopnuð og getur ekkert varið sig, þeir hafa ekki einu sinni heimild til að sveifla kylfunni því hún er aðeins til að vísa umferð. Held það sé kominn tími á að veita lögreglunni aðeins rýmri heimild til að verja sig. En líklega þarf einhver að slasast alvarlega eða deyja til að úr því verði, eins og með bílslysin.
Maður verður líka dáldið var við þennan klíkuskap hjá útlendinunum þegar maður fer í miðbæinn. Seinast þegar við fórum (og þá ekki búin að fara í rúmlega ár eða eitthvað) þá vorum við að reyna að komast inná Glaumbar, þar fyrir utan stóð stór lögreglubíll og ringlaður dyravörður í dyrunum sem öskraði á alla að hann vildi sja skilríki. Ok, það er svosem ekkert óeðlileg sjón nema hvað að það hlustaði enginn á hann, heldur ruddist hópur af æstum Pólverjum fram og til baka, inn og út og voru mjög æstir. Þarna var greinilega eitthvað klíkudæmi í gangi, veit ekki hvað en maður sá svosem að eitthvað var búið að ganga á. Þegar við komumst svo inn og pólverjastraumurinn róaðist aðeins var ekki þverfótað fyrir leðurjakkaklæddum karlmönnum af erlendu bergi brotnir og kvenmönnum í allt of stuttum pilsum og bolum, ofmálaðar með pínuveski hangandi á öxlinni. Kræst, Glaumbar eins og ég þekkti hann hefur verið hertekinn af Pólverjum, Litháum, Filipseyjingum og Tælendinum. Ekki misskilja mig, ábyggilega ágætis fólk og bla bla en Íslendingarnir eru farnir að flýja þetta. Og maður skilur það vel, þetta fólk hegðar sér allt öðruvísi en við, miklu meiri harka og drekkur líka öðruvísi. Ekki það að við séum barnanna best en mér finnst bara að við þurfum ekkert að bæta á þau vandræði. Sjáum til einhvernveginn grunar manni að þessar frjálsu reglur um innkomu í landið verði hertar fyrr en síðar.

Jæja, ég er aftur farin að tuða haha, læt þetta duga í bili af tuði, ætlaði bara að segja ykkur hvað væri í gangi í okkar daglega lífi, líklega kemur þetta því þó við.....

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er sammála þér með þessa útlendinga....