Ohhh Andra tókst að smita okkur af flensunni, núna liggjum við Guðni heima með hita. Sævar fór að vinna í morgun og Hilmar fór í pössun sem betur fer því ég er svo orkulaus að ég hefði sko verið endanlega búin á því á hádegi, hann er orðinn svo mikill orkubolti að maður má hafa sig allan við að hafa augu með honum. Hann er hættur að vera í göngugrindinni því hann var orðinn stórhættulegur sjálfum sér í henni. Ég hélt nú ekki að þetta væri hægt en honum tekst einhvernveginn að leggjast fram á hliðina á henni og láta sig vega salt og svo spriklar hann þangað til hann dettur í gólfið..... Þetta gerir hann í hvert skipti sem hann sér eitthvað áhugavert á gólfinu. Hann er líka alltaf á hausnum núna því hann er farinn að labba með og standa allsstaðar upp en ef honum langar að fara einhvert annað þá bara sleppir hann og er ekkert að spá í að hann kunni ekki að standa, hann er semsagt langt á undan sjálfum sér. Um daginn hélt hann á snuddunni sinni og var að vesenast eitthvað með hana og gleymdi alveg að halda sér í eitthvað annað. Við fylgdumst með honum og um leið og hann tók eftir að við værum að horfa þá fór hann að riða og rétt náði að grípa í borðið. Þetta er semsagt alveg að koma hjá honum, það er eflaust ekki ýkja langt þangað til hann fer að labba.
Æi ætla ekki að hafa þetta langt núna, við Guðni ætlum að halda áfram að hafa það kósí meðan við erum ein veik heima, Andri fór uppí bústað í gær því pabba leiddist svo að hafa engan að fíflast í, því miður komst Guðni ekki með núna. Læt flakka hérna nokkrar myndir af Guðna og Hilmari úti á túni í seinustu viku, Andri stakk af þegar hann frétti af tilvonandi myndatöku, næ honum seinna :0)


4 ummæli:
Vá hvað er langt síðan ég hef séð ykkur, Hilmar er orðinn svaka stór!
Verð að fara að kíkja til ykkar þegar þið hressist af pestinni, látið ykkur batna sem fyrst.
jiii hvað þeir eru myndarlegir!!! ekkert smá sætir!
Ljosmyndasíðan þín er ekkert smá flott, hef ekki skoðað hana áður, helling af glæsilegum myndum þar
Flottar myndir . ekkert smá sætir bræður
Skrifa ummæli