sunnudagur, 24. ágúst 2008

TIL HAMINGJU ÍSLAND


TIL HAMINGJU ÍSLENDINGAR!!!!

Stór dagur í íslenskri sögu í dag. Aðeins einu sinni áður fyrir hálfri öld síðan hefur sami árangur náðst og þó ekki því það er mun erfiðara að ná svona árangri í hópíþrótt. Held ég hafi aldrei átt jafn auðvelt með að vakna á jafn óguðlegum tíma á sunnudegi eins og í dag. Allir hérna voru mjög spenntir yfir leiknum, sérstaklega í byrjun, en svo fór áhuginn reyndar dvínandi þegar fór á líða á leikinn og ísland undir. Mér fannst samt vanta dálitla spennu í leikinn, byrjunin góð en restin af leiknum frekar dauf.

Fyndið hvað maður lifir sig inní þetta, farinn að hafa skoðun á íþróttum, hverjum hefði grunað það, haha. En hver hefur ekki áhuga þegar svona lagað gerist, líklega kemur þetta aldrei til með að gerast aftur á okkar lífsleið en auðvitað er það ekki ómögulegt, bara ekkert sérstaklega líklegt.

Þannig að það er best að njóta núna þegar það er hægt að segja með sanni að við séum næstbest í heimi.....

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég hef ekki sofið eins vel og ég gerði lengi eins og þegar silfur leikurinn fór fram. Ingvar fór á fætur með stelpuni og ég fékk að sofa út..... alger snilld

Nafnlaus sagði...

Áfram Ísland!!