Þá er þessari miklu ferðahelgi lokið. Við enduðum á því að fara í Fossatún í Borgarfirðinum þar sem Húsafell var orðið fullt strax á fimmtudeginum. Mér leist nú ekkert allt of vel á þennan stað fyrst, hefur aldrei fundist þetta neitt sérstaklega heillandi svæði en þetta leynir alveg svakalega á sér, rosalega flottur staður. Við borguðum 600 krónur fyrir nóttina og inní því var aðgangur að sturtu, þvottavél og þurrkara, heitum pottum, minigolf og einhverju flottasta barnaleiksvæði sem finnst, allt á alveg ótrúlega lokuðu og góðu svæði. Einnig er hægt að komast á internet og þarna er líka kaffihús og veitingarsala. Mottóið þarna er heldur ekki að fylla tjaldsvæðið til að græða sem mest, heldur að hafa þetta bara þægilegt og þjónustuna góða. Það hefði t.d. komist mikið meira af tjöldum þarna en þeir bara vildu ekki fá fleiri. Þetta er fjölskylda sem sér um þetta, þau eru ekki að ráða sér sérstaklega fólk til að vinna þarna heldur er þetta bara fjölskyldu fyrirtæki og verkefni. Við vorum alveg ótrúlega sátt þarna og við eigum alveg pottþétt eftir að koma þarna aftur.
Við vorum líka alveg ótrúlega fegin að hafa ekki farið í Húsafell en það logaði allt þar í slagsmálum og látum. Ég frétti af fólki sem var þar og langaði bara að komast burt út af látunum en komst það bara ekki því það var svo mikið af tjöldum búin að tjalda fyrir þeim. Húsafell er líka svo stórt og þekkt batterí að það býður dáldið uppá að svona gerist, þarna þarf að hafa mikla gæslu sem fór eitthvað úr skorðum þarna þessa helgi. Leiðinlegt en ég var mikið mikið fegin að hafa bara verið annarsstaðar.
Svona skemmtum við okkur vel með neonljósin sem voru keypt fyrir börnin, en þau voru alltaf sofnuð áður en það varð dimmt þannig að..... ekki vildum við að þau skemmdust.....

Á laugardeginum fékk ég líka tækifæri til að fara og heimsækja Tótu og nýburann en hún býr þarna í tíu mínútna fjarlægð frá Fossatúni. Þar var mikil gleði yfir litla barninu og þá sérstaklega hjá stóru systir. Þær eru ótrúlega ólíkar sérstaklega hvernig Lishbeth leit út þegar hún fæddist, hún var miklu líkari Tótu, þessi er meira í pabba síns fjölskyldu þó hún sé nú ekki beint lík honum, fyndið hvernig erfðirnar koma fram.

Við ákváðum svo að fara heim á sunnudaginn þar sem allir fengu þá flugu í hausinn að fara í bæinn og djamma þar seinasta kvöldið. Við fórum þá bara að veiða og enduðum á Þingvöllum og eins og Sævar lofaði þá veiddi ég fisk en hann var nú ekki merkilegri en svo að ég sleppti honum bara, hann leit út eins og hornsíli á sterum greyið þannig en ekki svona stór og fínn eins og Sævar kemur heim með þannig að ég er ennþá á þeirri skoðun að Sævar kaupi bara fiskana sem hann kemur heim með. Hérna er sýnishorn af einum sem Sævar veiddi þarna, við vorum að reyna að fá Hilmar til að skoða fiskinn en hann var meira heillaður af því að þa væri verið að taka af honum mynd til að sjá þetta skrítna dýr fyrir framan hann.

Svo á mánudeginum þá kíktum við aftur og fórum þá í Elliðavatn af því við þurftum að skreppa í bæinn en þar gerðist ekki neitt, sáum fiskana en urðum ekki vör við þá. Þurfum bara að fara aftur fljótlega þangað sem það er fiskur, jaaaa, t.d. í Nóatún....
Svo í morgun tók Hilmar uppá því að standa upp í rúminu sínu, alveg ótrúlega montinn með afrekið, nú er ekki neitt sérstaklega auðvelt að bara leggjast niður og fara að sofa þegar maður kann að standa svona upp og leika einhverjar listir. Hann er alveg ótrúlega kaldur við þetta, þegar honum langar ekki að standa lengur þá bara sleppir hann og lætur sig húrra niður, þannig að það fer að styttast í kúlurnar og marblettina. Læt fljóta hérna myndir af honum með jafnvel þótt hann sé grautdrullugur að fara að sofa eftir hádegismatinn.
Svona er maður duglegur
Langar voða mikið að ná uppfyrir

Fall er faraheill

Já svo hvíslaði því að mér lítill fugl að það væri ekki hægt að kommenta nema maður væri innskráður, ég er með það stillt þannig að allir eiga að geta það, það þarf bara að haka í kassann, name/url, eða nafnlaus. Vonandi gengur það.

1 ummæli:
kvitt fyrir mig... ótrúlega töff myndin af prinsinum með fisk greyið....
Það að standa í rúminu sínu er líka sport hér á bæ....
sjáumst vonandi bara fljótlega aftur! ;)
Skrifa ummæli