Núna eru strákarnir komnir aftur heim frá Brasilíu eftir 3 mánaða ferð. Það er óskaplega notalegt að hafa aftur börn hlaupandi hérna inn og út og fá smá action í húsið. Maður er nú samt varla búinn að fá að sjá þá því þeir hafa meira og minna verið uppteknir við að hitta alla vini sína og segja frá og heyra atburði sumarsins. Þeir eru þónokkuð brúnir og þá sérstaklega á höndum og fótum, liggur við að maður verði að fara að nudda á sig brúnkukremi til að geta gengið við hliðin á þeim. Þeir hafa líka haft frá ýmsu að segja, dýragörðum og skemmtigörðum, strandarlífinu og hótelunum. Þeir eru búnir að flakka aðeins um Brasilíu, fóru til Sao Paulo, Rio de Janero, Joinville, Guarapari og fleiri staði sem ég kann ekki nafnið á. Þeir eru líka búnir að ferðast um þónokkur lönd til að komast á milli Íslands og Brasilíu og til baka. Þegar þeir fóru út fóru þeir fyrst til London svo til Zürich og þaðan til Sao Paulo í Brasilíu. Þegar heim var haldið fóru þeir frá Sao Paulo til Madrid þaðan til París og frá París til Íslands. Í París höfðu þau næstum heilan dag til að skoða sig um þannig að þeir fengu tækifæri til að sjá Effelturninn og Notre-Dam kirkjuna, semsagt heldur betur orðnir heimsborgarar eftir þetta sumar enda búnir að fara til 6 landa í sumar og 7 á þessu ári, geri aðrir betur.
En nú er það hversdagsleikinn sem tekur við og ég held svei mér þá að þeir séu nú bara sáttir við það, þeir voru voðalega spenntir að komast heim en dauðþreyttir og eru eiginlega fyrst núna að jafna sig á þreytunni enda er það varla fyrir fullorðna manneskju að ferðast í rúmlega 2 sólarhringa samfleytt hvað þá börn.
Þeir eru orðnir ótrúlega spenntir að byrja í skólanum og þá sérstaklega Guðni sem er að byrja í 1.bekk. Hann fær kennarann sem Andri var með í fyrra, hana Írisi og Andri fær nýjan kennara sem hefur ekki verið að kenna við skólann áður en er mamma vina hans þannig að hann þekkir hana vel sem er algjör plús fyrir gaur eins og hann.
Annars er lífið bara aftur að komast í fastar skorður eftir sumarið, maður leggst alltaf í smá dvala þegar þeir fara í burtu, nennir ekki að setja í þvottavél á hverjum degi eða að borða við borðið, elda almennilegan kvöldmat á hverju kvöldi og þess háttar, en það ótrúlega fyndið hvað maður dettur strax inní þann gírinn og þeir koma heim, næsta sumar verður þó líklega eitthvað frábrugðið þar sem Hilmar verður orðinn eldri þá og þarf að halda sinni rútínu þótt bræðurnir fari í frí.
Jæja, læt þetta duga í bili, kem með meiri fréttir fljótlega.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

4 ummæli:
æ var ekki gott að fá guttana heim aftur!!!
ójú, voðalega notalegt að fá þá og gaman að heyra hvað þeir eru búnir að vera að brasa.
Hæhæ ákvað að kommenta svona einu sinni ég kíki nú alltaf reglulega á síðuna þína sko. Á ekki að pósta mynd af sólbrúnu strákunum?
Kv. Sigga www.kjaftaskur.blog.is
jú jú það kemur ;o)
Skrifa ummæli