Nú erum við búin að "hanga" heima hjá okkur alveg í 5 daga og kannski alveg heila 8-9 daga í þessum mánuði og þar af leiðandi komin með dálitla útþrá. Það er mjög hentugt núna þar sem verslunarmannahelgin er yfirvofandi. Ég er bara þannig að það kemur ekki til greina að hanga heima og gera ekki neitt, hef aldrei verið bara heima og ekkert farið, ekki einu sinni þegar ég var krakki. Mamma og pabbi fóru alltaf einhvert um verslunarmannahelgina, jafnvel þótt pabbi hefði verið búinn að vera að vinna í hátt í 2 sólarhringa samfleytt fyrir helgina þá var sest upp í bílinn og brunað af stað. Núna er engin undantekning, í útilegu skulum við. Stefnan er tekin á Húsafell með Emmu vinkonu og fleira fólki. Þar er alltaf voða fjör sérstaklega fyrir börnin, en þau verða þónokkur með í för. Við höfum svo hugsað okkur að kíkja eitthvað í veiði á daginn líka. Sævar er alveg óður að reyna að smita mig af þessari veiðidellu. Ég hef nokkrum sinnum farið að veiða með Sævari og aldrei hefur neitt gerst og ég er farin að stríða honum á því að ég sé viss um að hann kaupi bara fiskana sem hann kemur með heim eftir veiðiferðir með strákunum. En ég efast ekkert um að þetta sé gaman þegar eitthvað gerist, við höfum bara ekki verið að fara á réttu staðina, maður fær fljótt leið á að standa þarna við vatnið þegar maður verður ekki einu sinni var við að líf sé í vatninu. Þannig að nú verður það reynt, að landa einum stórum, segir maður það ekki. Það verður gaman að sjá hvað gerist.
Ég vona að allir komi til með að eiga ánægulega helgi, það ætla ég svo sannarlega að gera og vonandi fara allir varlega í umferðinni sem er aldrei meiri en þessa helgi. Slysalausa helgi takk fyrir, góða ferð.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli