Þetta er nú aðalega sett upp til að geta commentað hjá henni Þóru, það er víst ekki hægt að commenta nema maður sé notandi en ég læt það ekki stoppa mig frekar en annað. Og fyrst að ég er byrjuð á þessu þá gæti ég bara as well haldið áfram. Sjáum til, kannski pósta ég einhverjum myndum hérna með, kannski bara af því sem við erum að gera, er þetta ekki til þess. T.d. erum við núna í vikunni að fara með Theó og Jóa í rekstur. Rekstur er semsagt fyrir þá sem ekki skilja og vita(hef rekið mig á það undanfarna daga að það er fólk sem ekki veit það), hrossarekstur, þá förum við með hóp af hrossum og nokkrir eru á baki og svo er stóðið rekið áfram einhverja fyrirframákveðna leið, var þetta nógu skýrt. Ég ætla sjálf að vera trúss og fyrir þá sem ekki vita það og skilja (það eru nefnilega líka nokkrir skilst mér), er það manneskjan sem keyrir með stóðinu og heldur utan um matinn og tekur uppí knapana sem eru orðnir þreyttir og vilja fá smá hvíld, og svo ferja ég auðvitað allt draslið sem þarf að fara með.
Þetta verður ábyggilega svakalegt stuð og er planið að vera í svona 3 daga en við förum nú samt ekki langt á hverjum degi þar sem þetta eru frekar ung hross og við keyrum bara til baka seinnipartinn og gistum öll á Feti þar sem Theó og Jói búa.
Planið er að leggja af stað á þriðjudag en á morgun förum við til þeirra og karlarnir ætla að járna og við Theó að skipuleggja hvað skal eta og hvar skal stoppa.
Well, pósta einhverjum myndum úr ferðinni þegar heim verður komið á fimmtudaginn.
Ciao.

4 ummæli:
úúúú takk :D
hurru btw hvernig settirðu link í bloggið undir mínu nafni...
kann ekki að gera svoleiðis! :D
velkomin í blogg heim........ kv Disill
ég gat kommentað án þess að vera notandi!
já þetta er stillingaratriði. Ég hef það þannig að allir geti gefið komment.
Skrifa ummæli