fimmtudagur, 31. júlí 2008

Verslunarmannahelgi framundan

Nú erum við búin að "hanga" heima hjá okkur alveg í 5 daga og kannski alveg heila 8-9 daga í þessum mánuði og þar af leiðandi komin með dálitla útþrá. Það er mjög hentugt núna þar sem verslunarmannahelgin er yfirvofandi. Ég er bara þannig að það kemur ekki til greina að hanga heima og gera ekki neitt, hef aldrei verið bara heima og ekkert farið, ekki einu sinni þegar ég var krakki. Mamma og pabbi fóru alltaf einhvert um verslunarmannahelgina, jafnvel þótt pabbi hefði verið búinn að vera að vinna í hátt í 2 sólarhringa samfleytt fyrir helgina þá var sest upp í bílinn og brunað af stað. Núna er engin undantekning, í útilegu skulum við. Stefnan er tekin á Húsafell með Emmu vinkonu og fleira fólki. Þar er alltaf voða fjör sérstaklega fyrir börnin, en þau verða þónokkur með í för. Við höfum svo hugsað okkur að kíkja eitthvað í veiði á daginn líka. Sævar er alveg óður að reyna að smita mig af þessari veiðidellu. Ég hef nokkrum sinnum farið að veiða með Sævari og aldrei hefur neitt gerst og ég er farin að stríða honum á því að ég sé viss um að hann kaupi bara fiskana sem hann kemur með heim eftir veiðiferðir með strákunum. En ég efast ekkert um að þetta sé gaman þegar eitthvað gerist, við höfum bara ekki verið að fara á réttu staðina, maður fær fljótt leið á að standa þarna við vatnið þegar maður verður ekki einu sinni var við að líf sé í vatninu. Þannig að nú verður það reynt, að landa einum stórum, segir maður það ekki. Það verður gaman að sjá hvað gerist.

Ég vona að allir komi til með að eiga ánægulega helgi, það ætla ég svo sannarlega að gera og vonandi fara allir varlega í umferðinni sem er aldrei meiri en þessa helgi. Slysalausa helgi takk fyrir, góða ferð. 

þriðjudagur, 29. júlí 2008

Lítil prinsessa fædd


Tóta vinkona mín er búin að eyða seinustu tveimur og hálfum mánuði í að bíða eftir litla barninu sínu. Í maí gerði barnið fyrst vart um sig og allt leit út fyrir að krakkinn ætlaði að flýta sér um of í þennan heim, en allt kom fyrir ekki, krakkinn sá að sér og hreiðraði um sig þann tíma sem hann hafði þarna í bumbunni sem betur fer. En biðin hefur nú ekki verið auðveld, Tóta er ekki beint manneskjan sem þolir það að vera svona lengi pökkuð inní bómull og mega ekki einu sinni horfa á skúringarfötuna hvað þá að lyfta henni.
Svo klukkan 8 í gærmorgun fékk ég skilaboð um að vatnið væri farið, og gærdagurinn fór í svakalega spennu eftir meiri fréttum. Klukkan 5 í nótt fékk ég svo loksins skilaboð um að fædd væri lítil stelpa en hún kom í heiminn rétt eftir miðnætti í nótt. Þeim heilsast báðum alveg svakalega vel og allt gekk eins og í sögu. Ég hlakka mikið til að sjá skottuna enda er þetta dáldið eins og eignast litla frænku, við Tóta höfum alltaf verið miklar vinkonur og bjuggum saman á tímabili og Andri hélt meira að segja um tíma að hún væri líka mamma sín.....

Ég óska Tótu minni og Kidda innilega til hamingju með fjölskyldustækkunina og vonandi á allt eftir að ganga eins vel og það hefur gert hingað til.

mánudagur, 28. júlí 2008

Komin heim

Jæja, þá erum við komin heim úr ferðinni, henni lauk reyndar á föstudaginn en við gistum eina nótt í viðbót fyrir austan og grilluðum saman og svona. Þetta var alveg hörkugaman og reyndar það gaman að strákarnir voru búnir að ákveða að fara aftur af stað í dag. En við Theó sáum fram á að sniðugra væri bara að gefa hestunum smá ferðapásu í viku og fara eftir verslunarmannahelgina í dáldið langa ferð í staðinn, verðum þá líklega í 5 daga. Þá er stefnt á að þræða Landeyjarnar endilangar, vestur og austur Landeyjar og enda svo á því að fara meðfram þjóðveginum alla leið uppá Fet. Svo komu upp hugmyndir um að fara jafnvel eina alvöruferð með meira tamin hross og geta þá farið einhvert inná fjöll eða eitthvað úr alfaraleið. Núna vorum við aðalega bara með 4 og 5 vetra hross og þess vegna var ekkert farið neitt voðalega langt á hverri dagsleið. En eins og ég sagði var þetta alveg ógurlega gaman og við bíðum bara spennt eftir að fara aftur.
Við tókum með eina meri frá okkur og létum hana hlaupa með, ekki veitir af því hún er spikfeit greyið og það stendur til að koma henni í dóm næsta vor þannig að hún verður í hörku þjálfun í vetur og hefði gott af því að láta aðeins renna af spikinu á sér áður en það hefst. Svo voru með okkur tveir ungir hestamenn, Hilmar Darri og Herdís Björg, þau stóðu sig ótrúlega vel að sitja í bílnum og vera stillt og þæg, en auðvitað reynir svona töluvert á svona litlar sálir. Hilmar var orðinn dáldið mikið þreyttur á föstudagskvöldinu og steinsofnaði klukkan 7 um kvöldið. En það var ótrúlega gaman að fylgjast með honum þarna, um leið og hann sá hestana koma hlaupandi hreinlega skríkti hann, þannig að það er óhætt að segja að hann sé strax komin með hestasóttina.

Ég tók alveg helling af myndum í ferðinni og hérna er svona rjóminn af þeim:

1. Séð á hópinn aftanfrá, Bergrún og Rúnar reka á eftir.

2. Varla lögð af stað þegar þurfti að stoppa til að yfirfara járningar, Sævar og Jói tóku það að sér að skiptast á að járna og að sjálfsögðu að metast um það hvor járnaði betur .

3. Sævar í afslöppun í einu stoppinu.


4. Sævar og Jói að leiða hópinn.
5. Stóðið að koma að Skarði en þar var endað fyrsta daginn.


6. Hilmar Darri og Theó við félagsheimili Landmanna

7. Herdís Björg(2 ára) var þyrst, er þá ekki bara málið að drekka úr mörgum glösum


8. Hilmar Darri að hnoðast á pabba sínum


9. Hver segir svo að karlmenn geti ekki gert tvo hluti í einu, Jói að senda SMS á baki.


10. Sævar að bíða eftir að stóðið elti sig inní smá gerði til að stoppa.

11. Hilmar Darri að prófa Flautu

12. Ekkert smá ánægður á hestbaki




þriðjudagur, 22. júlí 2008

Ekki enn farin

Við erum nú ekki enn farin í þessa ferð okkar en stefnan er tekin á morgundaginn. Ætlum að hittast um 9 leytið í fyrramálið og fara þá að græja og gera og leggja svo af stað uppúr hádeginu. Dagurinn í dag og gærdagurinn hefur farið í járningar og svoleiðis og núna er ég að týna saman það sem við þurfum helst að hafa með. Ekkert smá fyrirtæki að taka barn með sér í næturgistingu... Við erum að tala um það að Patrollan okkar er alveg sneisafullur þegar við förum einhvert með Hilmar en núna þarf ég líka að gera ráð fyrir því að hafa pláss fyrir reiðtýin og að fólk geti setið í sætunum. Þannig að skipulagningin þarf að vera ægileg. Þar sem ég er ekkert sérstaklega mikið inná því sviði fær Sævar venjulega það verðuga verkefni að raða í bílinn. Raða er ekki inní minni orðabók, ég til dæmis vill frekar hrúga dótinu eða bara þegar það verður þröngt að ýta því innar svo ég þurfi nú ábyggilega ekki að taka út einn einasta hlut til að endurskipuleggja bílinn, nú eða ferðatöskuna eða skápana eða..... Æi jú gat þí pójnt. 

Já, í fyrramálið fara strákarnir í það að keyra hrossin á byrjunarpunkt og við Theó ætlum að taka að okkur að sjá um matarmálin, smyrja og klára að versla inn það sem við ætlum að borða yfir daginn. Reyndar hefði mér þótt það athyglisverðara ef þetta hefði verið á hinn veginn, að við myndum keyra hrossin og að þeir myndu finna nesti. Þarf svosem ekki að segja sjálfri mér hvernig það væri, kexpakki og svali, PERFECT. Planið hjá okkur er pínulítið flóknara, þ.e. að smyrja einhverjar samlokur með salati og kannski sinnepsósubrauð(mmmm nammi) og skemmtilegast hefði nú verið ef við hefðum haft tíma í að baka muffur, kannski náum við því annaðkvöld fyrir fimmtudaginn.

En allavega, ef ég ætla að leggja af stað klukkan 8 í fyrramálið ætti ég nú að fara að klára að finna mig til, þangað til næst....

mánudagur, 21. júlí 2008

Fyrsta blogg

Þetta er nú aðalega sett upp til að geta commentað hjá henni Þóru, það er víst ekki hægt að commenta nema maður sé notandi en ég læt það ekki stoppa mig frekar en annað. Og fyrst að ég er byrjuð á þessu þá gæti ég bara as well haldið áfram. Sjáum til, kannski pósta ég einhverjum myndum hérna með, kannski bara af því sem við erum að gera, er þetta ekki til þess. T.d. erum við núna í vikunni að fara með Theó og Jóa í rekstur. Rekstur er semsagt fyrir þá sem ekki skilja og vita(hef rekið mig á það undanfarna daga að það er fólk sem ekki veit það), hrossarekstur, þá förum við með hóp af hrossum og nokkrir eru á baki og svo er stóðið rekið áfram einhverja fyrirframákveðna leið, var þetta nógu skýrt. Ég ætla sjálf að vera trúss og fyrir þá sem ekki vita það og skilja (það eru nefnilega líka nokkrir skilst mér), er það manneskjan sem keyrir með stóðinu og heldur utan um matinn og tekur uppí knapana sem eru orðnir þreyttir og vilja fá smá hvíld, og svo ferja ég auðvitað allt draslið sem þarf að fara með. 

Þetta verður ábyggilega svakalegt stuð og er planið að vera í svona 3 daga en við förum nú samt ekki langt á hverjum degi þar sem þetta eru frekar ung hross og við keyrum bara til baka seinnipartinn og gistum öll á Feti þar sem Theó og Jói búa.

Planið er að leggja af stað á þriðjudag en á morgun förum við til þeirra og karlarnir ætla að járna og við Theó að skipuleggja hvað skal eta og hvar skal stoppa. 

Well, pósta einhverjum myndum úr ferðinni þegar heim verður komið á fimmtudaginn.

Ciao.