Ég hef ákveðið að flytja mig um bloggkerfi. Er ekki alveg að fíla þetta blogspot kerfi, finnst bara flókið og leiðinlegt að gera breytingar á útliti síðunnar og uppsetningu og fæ oft upp error-a. Þannig að ég ætla að tékka á wordpress blogginu, er búin að vera að fikta þar og lýst bara alveg ljómandi vel á það, sérstaklega þar sem boðið er upp á íslenska útgáfu.
Slóðin er ingibjörgh.wordpress.com
og fyrir Rss fíklana, þá er auðvitað bara bætt feed við fyrir aftan, ingibjorgh.wordpress.com/feed/
Ég flutti allt héðan yfir á nýju síðuna og hlakka til að fá að heyra hvað fólki finnst.
Kveðja,
Ingibjörg sem er búin að pakka niður hérna og lögð af stað á wordpress......
sunnudagur, 12. október 2008
miðvikudagur, 8. október 2008
Mikið að gerast
Viðburðaríkir dagar að baki, allt á hvolfi í fjármálaheiminum og mátti litlu muna að virkilega illa hefði farið. Ótrúlegt hvað svona gerist hratt, allir vissu nú svosem að við værum á niðurleið en ég held að fæstum hafi grunað við værum á svona hraðri niðurleið og hvað þá svona langt. Þetta er hreinlega ævintýri líkast. Þetta er eins og ódýr vísindaskáldsögumynd gerð árið 1993 um það hvernig heimurinn komi til með að fara árið 2000 og e-ð.
Fyrst fellur kerfið og fólk panikar og fer að hegða sér eins og fífl, hlaupa út um allt í geðshræringu til að veita sér björg, það hamstrar mat og olíu þangað til að lítið er eftir, þá fer fólk að berjast fyrir lífu sínu og það sem gildir eru klærnar. Survival of the fittest, gamla góða náttúrulögmálið er efst á baugi og fólk svífst einskins til að ná í seinustu kexpakkana(ég meina hver getur verið kexlaus). Allir tæma útúr bönkunum því þeim er ekki treystandi sem gerir það að verkum að bankakerfið fellur endanlega. Fljótlega eru peningar þó orðnir verðlausir blaðsnefslar og betur nýttir sem eldiviður en til skipta fyrir vörur. Og eins og ástandið sé ekki orðið nógu slæmt, bætist við að skæð bakteríuveira fer að ganga og þúsundir ef ekki miljónir manna deyja og margir aðrir verða örkumla. Vegna mannfallsins geta fáir sinnt þeim samfélagslegu þörfum sem áður þarf að sinna, svosem að mála hús, laga vegi, slá grasbletti og annað slíkt. Allt verður drungalegt og dimmt, sem fer í skapið á fólki og það hættir að treysta hvert öðru. Og þá er nú ekkert eftir til að gera söguna lélegri en að flytja bara til Mars og ferðast um á flugbílum.
Við stefnum að þessu, sjáið bara til, byrjunin er komin...

sunnudagur, 14. september 2008
Bölvuð flensan
Ohhh Andra tókst að smita okkur af flensunni, núna liggjum við Guðni heima með hita. Sævar fór að vinna í morgun og Hilmar fór í pössun sem betur fer því ég er svo orkulaus að ég hefði sko verið endanlega búin á því á hádegi, hann er orðinn svo mikill orkubolti að maður má hafa sig allan við að hafa augu með honum. Hann er hættur að vera í göngugrindinni því hann var orðinn stórhættulegur sjálfum sér í henni. Ég hélt nú ekki að þetta væri hægt en honum tekst einhvernveginn að leggjast fram á hliðina á henni og láta sig vega salt og svo spriklar hann þangað til hann dettur í gólfið..... Þetta gerir hann í hvert skipti sem hann sér eitthvað áhugavert á gólfinu. Hann er líka alltaf á hausnum núna því hann er farinn að labba með og standa allsstaðar upp en ef honum langar að fara einhvert annað þá bara sleppir hann og er ekkert að spá í að hann kunni ekki að standa, hann er semsagt langt á undan sjálfum sér. Um daginn hélt hann á snuddunni sinni og var að vesenast eitthvað með hana og gleymdi alveg að halda sér í eitthvað annað. Við fylgdumst með honum og um leið og hann tók eftir að við værum að horfa þá fór hann að riða og rétt náði að grípa í borðið. Þetta er semsagt alveg að koma hjá honum, það er eflaust ekki ýkja langt þangað til hann fer að labba.
Æi ætla ekki að hafa þetta langt núna, við Guðni ætlum að halda áfram að hafa það kósí meðan við erum ein veik heima, Andri fór uppí bústað í gær því pabba leiddist svo að hafa engan að fíflast í, því miður komst Guðni ekki með núna. Læt flakka hérna nokkrar myndir af Guðna og Hilmari úti á túni í seinustu viku, Andri stakk af þegar hann frétti af tilvonandi myndatöku, næ honum seinna :0)

miðvikudagur, 10. september 2008
Hversdagsleikinn ræður ríkjum
Hérna sunnan heiða gengur allt sinn vanagang svosem, Andri er búinn að vera veikur reyndar og þá fer Guðni einn á morgnanna sem er náttúrulega alveg óskaplega kúl. Hann hefur stækkað alveg ógurlega síðan hann byrjaði í skólanum og talar varla um annað en hvað er gaman. Svo eru náttúrulega öll afmælin að fara að skella á. Andri býður spenntur eftir sínu í næstu viku en fyrst á mamma afmæli. Það verður haldið upp á það uppí bústað næstu helgi og Andri Hrafn er orðinn dáldið hræddur um að hann nái ekki að koma þar sem hann er veikur núna en ég hefvenga trú á öðru en að hann komist. Svo er Guðni auðvitað farinn að telja niður og búa til óskalista hvað hann vill fá í afmælisgjöf. Ef einhver vill hugmynd um hvað hann vill þá er rafmagnsgítar ofarlega á listanum og líka gsm sími.
Sævar er byrjaður á fullu að vinna aftur eftir að hafa klárað fæðingarorlofið. Hann er líka mjög líklega kominn með samning hjá meistara hjá JÁverk, þeir tóku mjög vel í að taka hann á samning og vilja alls ekki missa hann frá sér, sem er léttir þegar það er verið að segja upp mönnum í hrönnum. Pólverjarnir týnast núna einn og einn heim, en þeim hefur ófáum verið sagt upp hjá JÁverk eins og annarsstaðar. Æi ég segi ekki annað en að það megi nú vera í lagi. Það voru hérna fyrir austan aðilar sem voru ekki alveg með alla fulla fimm í lagi. Einn þeirra sérstaklega var alveg virkilega ógeðslegur, við vissum ekki betur en að hann hafi farið heim aftur en þegar strákarnir komu heim frá Brasilíu, kom sá maður útúr tollinum líklega að koma úr vél frá Munich. Maður getur nú ekki annað en hugsað að þetta sé maður sem á líklega ekki afturkvæmt heim til Póllands því hann var hérna á Selfossi í dáldinn tíma atvinnulaus. Hann sat um stelpurnar á kössunum í Nóatúni og var gónandi á litlar stelpur og bara virkilega óhugnarlegur.
En þetta er það sem er búið að kalla yfir okkur. Meira að segja lögreglan viðurkennir að að fólk af erlendu bergi brotið sýnir þeim aukna óvirðingu og er mikið að brjóta af sér. Held að þeir hafi nú fengið sönnun á máli sínu núna seinustu helgi þegar lögregluþjónn var laminn í heimahúsi þar sem hann var kallaður að vegna hávaða, félagi hans gat ekkert gert þar sem aðrir í partýinu stoppuðu hann að komast að. Þessu liði er alveg sama, þeir vita alveg að lögreglan hérna er ekki vopnuð og getur ekkert varið sig, þeir hafa ekki einu sinni heimild til að sveifla kylfunni því hún er aðeins til að vísa umferð. Held það sé kominn tími á að veita lögreglunni aðeins rýmri heimild til að verja sig. En líklega þarf einhver að slasast alvarlega eða deyja til að úr því verði, eins og með bílslysin.
Maður verður líka dáldið var við þennan klíkuskap hjá útlendinunum þegar maður fer í miðbæinn. Seinast þegar við fórum (og þá ekki búin að fara í rúmlega ár eða eitthvað) þá vorum við að reyna að komast inná Glaumbar, þar fyrir utan stóð stór lögreglubíll og ringlaður dyravörður í dyrunum sem öskraði á alla að hann vildi sja skilríki. Ok, það er svosem ekkert óeðlileg sjón nema hvað að það hlustaði enginn á hann, heldur ruddist hópur af æstum Pólverjum fram og til baka, inn og út og voru mjög æstir. Þarna var greinilega eitthvað klíkudæmi í gangi, veit ekki hvað en maður sá svosem að eitthvað var búið að ganga á. Þegar við komumst svo inn og pólverjastraumurinn róaðist aðeins var ekki þverfótað fyrir leðurjakkaklæddum karlmönnum af erlendu bergi brotnir og kvenmönnum í allt of stuttum pilsum og bolum, ofmálaðar með pínuveski hangandi á öxlinni. Kræst, Glaumbar eins og ég þekkti hann hefur verið hertekinn af Pólverjum, Litháum, Filipseyjingum og Tælendinum. Ekki misskilja mig, ábyggilega ágætis fólk og bla bla en Íslendingarnir eru farnir að flýja þetta. Og maður skilur það vel, þetta fólk hegðar sér allt öðruvísi en við, miklu meiri harka og drekkur líka öðruvísi. Ekki það að við séum barnanna best en mér finnst bara að við þurfum ekkert að bæta á þau vandræði. Sjáum til einhvernveginn grunar manni að þessar frjálsu reglur um innkomu í landið verði hertar fyrr en síðar.
Jæja, ég er aftur farin að tuða haha, læt þetta duga í bili af tuði, ætlaði bara að segja ykkur hvað væri í gangi í okkar daglega lífi, líklega kemur þetta því þó við.....

fimmtudagur, 4. september 2008
Loksins nýtt blogg
Úfff tíminn líður hratt, ætlaði fyrir löngu að vera búin að skrifa eitthvað hérna inn en það hefur bara dottið upp fyrir. Allavega, þá eru strákarnir byrjaðir í skólanum og það er alveg svakalegt stuð sérstaklega hjá Guðna Jóel, það er bara allt gaman. Það er gaman í smíðum og hann fór á bókasafnið og það var gaman og hann er búinn að fara í sund og já auðvitað var það líka gaman, kennarinn hans er búinn að vera frá og hann er búinn að vera með gamla kennarann hans Andra og það er FRÁBÆRT!!!! Hann er líka búinn að fatta að hann er ekki sá eini í skólanum sem er fimm ára, hann er búinn að finna tvo aðila sem eru í þeirri erfiðu stöðu en hann bíður spenntur eftir að komast í sex ára flokkinn.
Andri er nú ekki alveg eins spenntur yfir þessu öllu en honum finnst samt voðalega gaman. Hann er farinn að hafa óþarflega mikla skoðun á hlutunum sem mér finnst reyndar bara gaman og fyndið. Húfan hans er t.d. orðin alveg ferlega hallærisleg allt í einu og allt sem Guðni gerir og hefur gaman af er alveg hræðilega barnalegt, þ.e. þegar vinir hans eru nálægt til að hlusta á það. Svo eru náttúrulega einhver ákveðin föt sem hægt er að fara í í skólann en önnur, ekki að ræða það. En eins og ég segi hef ég bara gaman af þessu, það er svaka þroskamerki að vilja fara að stjóra lífi sínu sjálfur og taka sjálfstæðar ákvarðanir þannig að maður getur nú varla kvartað.
En það er eitt sem aldrei breytist, báðir elska þeir litla bróðir sinn út af lífinu, Guðni getur ekki farið uppí rúm án þess að kyssa hann góða nótt og Andri dregur ennþá krakka með sér heim úr skólanum til að sýna þeim Hilmar Darra. Núna er Hilmar komin með tönn, hún kom upp á laugardaginn og það finnst Andra alveg rosalega spennandi. Þeir eru líka alltaf að fatta eitthvað nýtt sem Hilmar getur sem hann gat ekki áður en þeir fóru og Hilmar er líka alltaf að læra eitthvað nýtt.
Úffff, hann virðist ætla að vera dáldið hress hann Hilmar, hann prílar og klöngrast og fer hér hratt um. Það er ekki hægt að líta af honum eitt augnablik þá er hann komin einhvert sem hann á ekki að vera. Eldhússkáparnir mínir eru alveg rosalega vinsælir núna og ískápurinn og frystirinn, eftir að hafa lokað ísskápnum endalaust hérna einn daginn sá ég fram á að ég yrði bara að teypa hann, þannig að ískápurinn er innsiglaður núna þessa dagana. Maður getur heldur ekki litið af honum þegar hann er í matarstólnum sínum því hann reynir að standa uppúr honum, ég þarf að fá mér beisli á hann sem fyrst. Í göngugrindinni reynir hann stundum að velta sér uppúr, það er alveg glænýtt, þá hallar hann sér alveg fram og spriklar með fæturnar í lausu lofti, voðalega sniðugt og hann dettur næstum. Hann getur ekki verið á gólfinu í 1 mínútu eftirlitslaus því að þá er hann staðinn upp einhversstaðar og hann hikar ekkert við að sleppa sér alveg ef hann þarf að nota báðar hendur en hann hefur ekki jafnvægi til að standa einn, svo stundum þá labbar hann bara fram af brúninni sem hann hélst sér í, honum er alveg sama. Vinkona mín bauð mér leikgrind fyrir hann og ég ætla bara að þiggja það hjá henni svo ég komist allavega í þvottahúsið eða geti eldað án þess að maturinn brenni við þegar ég þarf að hlaupa og bjarga honum.
En já þetta er svona það helsta sem er að frétta af okkur, fyrir utan auðvitað að ég er komin í fjarnám í Iðnskólanum, ætla að taka 3 áfanga þar í Grunnnámi upplýsinga og fjölmiðlagreina. Ég er þá að læra myndvinnslu og þessháttar núna þessa önn. Ef þetta gengur vel og allt gengur upp sem þarf að ganga upp ætla ég bara að skella mér í fullan skóla eftir áramót og keyra á milli og stefna þá á grafíska miðlun. Er orðin svo leið á að rembast eins og rjúpa við staur að taka þetta í fjarnámi og aldrei sjá fyrir endann á nokkru að það er ekki eðlilegt, í fjarnámi myndi ég líklega klára í kringum fertugt og klára háskóla langt gengin í fimmtugt, hvað er gaman að því. Fyrir utan það að ég væri með rúman hundrað þúsund kall í laun allann þann tíma þar sem ég vinn á leikskóla.
Jæja, þetta er orðið svoldið langt, ég ætla að geyma ræðuna um skoðun mína á launum leikskólastarfsfólks þangað til seinna, þessi færsla færi að telja í blaðsíðum ef ég færi inná þá braut núna, haha.
Þangað til næst....

sunnudagur, 24. ágúst 2008
TIL HAMINGJU ÍSLAND

TIL HAMINGJU ÍSLENDINGAR!!!!
Stór dagur í íslenskri sögu í dag. Aðeins einu sinni áður fyrir hálfri öld síðan hefur sami árangur náðst og þó ekki því það er mun erfiðara að ná svona árangri í hópíþrótt. Held ég hafi aldrei átt jafn auðvelt með að vakna á jafn óguðlegum tíma á sunnudegi eins og í dag. Allir hérna voru mjög spenntir yfir leiknum, sérstaklega í byrjun, en svo fór áhuginn reyndar dvínandi þegar fór á líða á leikinn og ísland undir. Mér fannst samt vanta dálitla spennu í leikinn, byrjunin góð en restin af leiknum frekar dauf.
Fyndið hvað maður lifir sig inní þetta, farinn að hafa skoðun á íþróttum, hverjum hefði grunað það, haha. En hver hefur ekki áhuga þegar svona lagað gerist, líklega kemur þetta aldrei til með að gerast aftur á okkar lífsleið en auðvitað er það ekki ómögulegt, bara ekkert sérstaklega líklegt.
Þannig að það er best að njóta núna þegar það er hægt að segja með sanni að við séum næstbest í heimi.....

föstudagur, 22. ágúst 2008
Skólinn að byrja
Ohhh litli strákurinn minn hann Guðni Jóel, ekki svo lítill lengur. Í gær var skólasetning og minn maður var alveg afskaplega montinn með þetta allt saman, brosti út að eyrum allan tímann. Svo var haldið i bókaleiðangur, ég ætla ekki einu sinni að reyna að þreyta ykkur á því hvað mér finnst um okrið á skólabókamarkaðnum. Það litla sem er hægt að leggja á skólavörur barna, þó þakka ég mig sæla fyrir að skólinn hérna sé ekki með sömu kröfur og Breiðholtsskóli var með en þegar Andri byrjaði í 6 ára bekk þar þá var kostnaðurinn hátt í 20 þúsund krónur, núna náði ég ekki einu sinni helmingnum af þeirri upphæð en var þó að versla fyrir tvö börn. En semsagt í Breiðholtsskóla voru foreldranir sendir í bruðlleiðangur að verlsa tréliti, tússliti, breiða og mjóa, breiða og mjóa vaxliti, möppur í öllum mögulegum stærðum og gerðum og alla liti líka. Spilastokkar, teningar, blýantar að sjálfsögðu og allt sem því tilheyrði og pennaveski en helst eitt fyrir hverja tegund skriffæra, svo eru það skólatöskurnar en þær kosta nú sitt og þá sérstaklega þá sem vilja það besta fyrir börnin sín, semsagt töskur sem falla vel að bakinu og styðja við það og haldast vel uppá öxlunum, ja ég tel mig nú trúa því að flestir falli undir þennan flokk, allavega, það fólk fær nú að skrapa hvern aur úr vasanum því þannig töskur kosta bara tíu þúsund krónur sem er náttúrulega ekki alveg eðlilegt. Ég var nú svo heppin núna að losna alveg við töskukaup þar sem prinsarnir fengu þær í Brasilíu fyrir eflaust töluvert mikið minni pening heldur en það sem þær hefðu kostað hérna heima. En jæja þá er ég samt búin að ausa úr skálum reiði minnar yfir þessu ritfanga og skólabóka okri og bruðli en ykkur að segja þá hefði ég svo sem alveg getað haldið mikið lengur áfram en ég held að internetið sé ekki nógu stórt til að bera þá ræðu svo ég sný mér aftur að máli málanna.
Semsagt við fórum og versluðum skóladótið, Guðni Jóel var spenntastur yfir því að fá nýtt pennaveski og beið í ofvæni eftir að geta valið sér það og endaði á því að finna sér spiderman pennaveski í stíl við spiderman töskuna sem hann fékk fyrir skólann.
Í morgun var hann snöggur á fætur og duglegur að koma sér af stað sem hann hefur nú reyndar alltaf verið en það er orðið ansi langt síðan hann hefur þurft að vakna þar sem hann hefur ekki verið í leikskóla heldur síðan í maí í vor. En þetta gekk allt voðalega vel og Andri fylgdi honum út í rútuna en svo kemur hann einn heim með rútunni seinnipartinn því Andri er klukkutíma lengur í skólanum en hann. Ég ætlaði að fá að fylgja þeim alla leið í rútuna en Andri var alveg æstur að fá að fara einn með honum og sýna honum hvernig þetta virkar allt saman. Ég fann mér afsökun til að labba með þeim hálfa leið með því að taka af þeim myndir að fara í fyrsta skipti saman í rútuna. Andri verður líklega ekki alltaf svona æstur að hafa hann með sér, hehe en mig grunar að svona fyrst til að byrja með hafi Guðni dyggan stuðning bróður síns í frímínútum og á skólalóðinni. Í bekknum hans Guðna eru tveir aðrir strákar sem ég veit um sem eiga stóra bræður sem eru með Andra í bekk og eru vinir hans, skemmtileg tilviljun en mig grunar að þeir eigi eftir að vera ansi harðir ef litlu bræðrum þeirra verður eitthvað strítt. Andri hefur alltaf verið með það á hreinu að hann ætli að vernda bróðir sinn þegar hann kæmi í skólann til hans. Það verður gaman að sjá hvernig þetta á eftir að vera, vonandi þurfa þessir litlu peyjar bara enga "vernd".
Nú ætla ég að láta þetta gott heita í bili, læt fljóta hérna með myndir af Guðna í gær á skólasetningunni og svo í morgun þegar hann fór í fyrsta skipti í skólann.

1. Guðni sestur inní stofuna, þetta er sama stofa og Andri var í í fyrra.

2. Allir krakkarnir að standa aðeins upp og teygja úr sér, voða stuð.

3. Bræðurnir alveg tilbúnir að leggja af stað í skólann.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)